Existing Member?

Kenya here I come

Undirbúningur hafinn

ICELAND | Tuesday, 29 July 2008 | Views [397] | Comments [1]

Ég hef ákveðið að hafa aðra síðu fyrir þessa ferð mína. Síðasti dagurinn minn í vinnunni var í dag, ég verð nú eiginlega að segja að mér fannst hálfskrítið að hugsa til þess að ég mundi ekki mæta aftur til vinnu fyrr en eftir 3 mánuði. Það er líka skrítið að hugsa til þess að ég eigi ekki eftir að hitta alla þessa skemmtilegu vinnufélaga mína fyrr en í Nóvember. Það er líka eins gott fyrir þær (þar sem þetta eru allt konur á besta aldri) að vera duglegar að senda mér kveðju hérna á síðuna mína, annars fer ég bara í fílu og kem ekkert til baka :)

Ætli að það sé ekki best að fara að gera eitthvað í þessum undirbúiningi, kannski setja í eina þvottavél eða svo.

Hlakka til að geta sagt ykkur frá þessari spennandi ferð.

Sædís

Comments

1

Hæ. Auðvitað gat ég komist strax á þessa síðu. Það er eins gott að þú látir sjá þig hérna áður en þú ferð. Kveðja frá okkur öllum á Húsó.

  Eygló Jul 30, 2008 6:44 AM

About saedis


Follow Me

Where I've been

Photo Galleries

My trip journals



 

 

Travel Answers about Iceland

Do you have a travel question? Ask other World Nomads.