Nú er heldur betur farið að styttast í flugtak, bara rétt rúmur sólarhringur. Fyrst stendur til að fljúga til Parísar og eyða svo deginum í Disneylandi því við eigum ekki flug til Dubai fyrr en um kvöldið. Í Dubai á svo að sækja okkur á flugvöllunn þar sem við ætlum að nota biðina í að fara í eyðimerkursafarí. Þar eigum við víst að fá að flakka eitthvað um á fjórhjólum og skoða kamelbú þar sem við fáum að fara á 'kamelbak' og svo verður endað á sandbretti. Sem er víst eins og snjóbretti nema á sandöldum. Þetta verður eitthvað :) Býst ekki við að við verðum í miklu netsambandi þessa fyrstu sólahringa meðan við erum að komast til Jóhannesarborgar en við setjum inn sögur og myndir eftir því sem við getum :)